Skilmálar

Allur höfundarréttur ljósmynda er í eigu Ástu Guðrúnar Óskarsdóttur og gilda um þær höfundarréttarlög nr. 73/1972. Afhending ljósmynda felur ekki í sér framsal á höfundarrétti né heimild til breytinga á myndum án samþykkis ljósmyndara.

Meðhöndlun ljósmynda

Ljósmyndir má ekki nota í auglýsingaskyni eða annarri opinberri birtingu nema með leyfi ljósmyndara.
Óheimilt er að breyta myndum án samþykkis ljósmyndara. Við birtingu á samfélagsmiðlum er vel þegið að merkja: @studioastag

Greiðsla og afhending

Greiðsla fer fram samkvæmt samkomulagi milli viðskiptavinar og ljósmyndara. Myndir eru afhentar að lokinni fullri greiðslu. Afhendingartími getur verið breytilegur eftir umfangi verkefnis, en er að jafnaði 6–10 vikur.

Varðveisla

Unnar ljósmyndir eru varðveittar í eitt ár frá myndatöku. Eftir þann tíma ber viðskiptavinur ábyrgð á varðveislu þeirra.

Annað

Við bókun myndatöku teljast skilmálar þessir samþykktir, ásamt vinnslu ljósmynda samkvæmt gildandi persónuverndarlögum.

Óheimil notkun eða brot á höfundarrétti kunna að varða við höfundarréttarlög.